SMJER Bérnaise

Við notum tvö orð til að lýsa Smjér béarnaise, GÆÐI & SNILLD. Gæði vegna þess að varan er unnin úr bestu fáanlegu hráefnum með engum viðbótar aukaefnum öðrum en þeim sem er í ekta klassískri béarnaise sósu en uppistaðan er íslenskt smjör. Snilld vegna þess að með Smjer béarnaise er sáraeinfalt fyrir alla að laga ekta klassíska béarnaise sósu. Mörgum vex í augum að laga béarnaise sósu frá grunni og hafa því látið sér líka eftirlíkingar af béarnaise sósu, en með tilkomu SMJER Béarnaise er það liðin tíð, nú allir geta nú lagað klassíska alvöru béarnaise sósu í einungis þremur skrefum.

Leiðbeiningarnar eru einfaldar! 1. Þeytið eggjarauður þar til þær eru léttar og ljósar. Nota skal 90 gr. á móti innihaldi pakkans. 2.Bræðið SMJERIÐ við meðalhita, u.þ.b. 70 gráður Hellið SMJERINU varlega í mjórri bunu saman við eggjarauðurnar meðan haldið er áfram að þeyta. 3. Varist að hella SMJERINU of hratt saman við eggjarauðurnar svo að sósan skilji sig ekki. Ef sósan er of þykk má þynna hana aðeins með vatni

Sölustaðir SMJER

Hvernig á að laga ekta bérnaise sósu með Smjer Bérnaise

Að laga SMJER Bérnaise getur verið skemmtileg „fjölskylduíþrótt“

Guðjón sýnir gömlu klassísku aðferðina við að laga Bérnaise í vatnsbaði